-1,6kg á einni viku.
Nú hef ég verið að reyna að passa uppá mataræðið síðustu vikurnar og skrái allt inn á my fitnespal. Það hefur svo sannarlega skilað árangri. -1,6kg á einni viku og -3,8kg frá 3.apríl. Viktin sagði 90,3kg og er ég því 400gr frá því að komast LOKSINS undir þennan bjévítans TUG. Þeger ég hef farið í átök í gegnum árin þá hefur mér tekist að komast undir 100 og ætla mér ALDREI aftur að fara yfir 100. Þið kannist mörg hver við þann dans. En aldrei hefur mér tekist að komast undir 90 kg. Ég er því virkilega spennt fyrir komandi vikum og vonandi þarf ég aldrei að sjá töluna 90 aftur á blessuðu viktinni. Mig langar aðeins að útskýra hvað ég á við þegar ég segist skrá allt í my fitnespal. Þá meina ég ALLT. Ef ég fæ mér ballerínukex þá fer það inn. Ekki til þess að mér líði illa yfir því hvað ég er að troða í mig eða hvað það nú gæti verið. Heldur einfaldlega bara til þess að gera mér grein fyrir því hvað það er sem ég er að borða og þá sé ég hvaða breytingar ég get gert ef ég ...

Ummæli
Skrifa ummæli